Spennandi svæði
fyrir nýsköpun

Sveitarfélagið Hornafjörður er öflugt og vaxandi samfélag umvafið stórkostlegri náttúru við rætur Vatnajökuls. Við bjóðum frumkvöðlum, fjölskyldufólki og öllum þeim sem eiga kost á því að vera í fjarvinnu að kynna sér kosti þess að búa hér.

Nýsköpun

Á Höfn er starfrækt þekkingarsetur sem ber nafnið Nýheimar. Setrið er samstarfshattur ólíkra stofnana sem starfa á sviði menntunar, menningar, nýsköpunar og rannsókna á Suðausturlandi. Þekkingarsetrið leggur áherslu á að móta verkefni sem styðja við uppbyggingu samfélagsins og auka möguleika og lífsgæði svæðisins.
Hjá Nýheimum er haldið úti spennandi starfi fyrir nýsköpun og rannsóknum, hvort sem er fyrir frumkvöðla, háskólanemendur eða rannsakendur. Hafir þú áhuga á að starfa í slíku nærandi umhverfi getur þú sent fyrirspurn neðst á síðunni.

Náttúran

Náttúran í ríki Vatnajökuls er einstök, en tilkomumikið svæðið teygir sig allt frá Lómagnúpi í vestri að Hvalsnesi í austri. Yfir 60% af Sveitarfélaginu Hornafirði er innan Vatnajökulsþjóðgarðs, og er þar meðal annars finna Vatnajökul, stærsta jökul Evrópu, Jökulsárlón, hið stórfenglega Skaftafell og gönguparadísina í Lónsöræfum. Fjölmargir möguleikar eru í boði fyrir þá sem hafa gaman að útivist, hvort sem er við sjávarsíðuna, til jökla eða fjalla. Á svæðinu má finna fjölda gönguleiða, skemmtileg svæði til að stunda kayakróður, skoða fjölbreytt fuglalíf og margt fleira.

Samfélagið

Höfn í Hornafirði er eini þéttbýliskjarninn í ríki Vatnajökuls, en svæðið nær frá Lómagnúpi í vestri að Hvalnesskriðum í austri. Sveitarfélagið Hornafjörður er öflugt og vaxandi samfélag þar sem búa um 2500 manns. Þar er alla helstu þjónustu að finna hótel, veitingastaði, söfn, tjaldsvæði, verslanir, bensínstöðvar, pósthús, apótek o.fl. Svæðið er umvafið stórkostlegri náttúru við rætur Vatnajökuls. Vel er hlúð að skólastarfi, íþróttum og mikil áhersla hefur verið lögð á nýsköpun, rannsóknir og þekkingu á svæðinu undanfarin ár. Einnig hefur ferðamannastraumurinn legið í Sveitarfélagið Hornafjörð undanfarin ár sem hefur jafnt auðgað mannlífið og skapað ótal tækifæri fyrir byggðarlagið.

Senda fyrirspurn

Viltu vita meira um Sveitarfélagið Hornafjörð?
Sendu okkur fyrirspurn hér að neðan og við munum svara þér eins fljótt og auðið er.

    Sveitarfélagið Hornafjörður
    Hafnarbraut 27
    780 Höfn